Textílefni
Bómull
Bómull var í gamla daga kölluð jurtaull eða runnaull. Hún flokkast með náttúrutrefjum því hún vex og er ræktuð úti í náttúrunni.
Sagan: Bómull var fyrst ofin í Pakistan og Mexíkó fyrir 5000 árum. Egyptar voru byrjaðir að rækta hana 1200 f.Kr. og Indverjar 2500 árum f.Kr.
Ræktun: Hún er ræktuð í heittempraða beltinu vegna raka og mikils sólarljóss. Það eru 1-2 uppskerur á ári. Léleg bómull er með hárlengd um 2 sm en sú besta með um 5 sm hárlengd. Bómullin er gerð úr fræhárum bómullarrunnans.
Framleiðsla: Bómullin er mest framleidd í
Kína, svo á Indlandi og í Bandaríkjunum.
Besta bómullinn eða sú sem er með
mestu gæðin er Sea Island - bómull sem
kemur frá Bandaríkjunum. Næst best er
Giza- og Mako- bómull frá Egyptalandi og
verstu gæðin eru frá Kína.
Hér má sjá stutta mynd sem sýnir hvernig bómull verður til: