Textílefni
Eiginleikar - Silki
Silki krumpast lítið því það er fjaðurmagnað. Silkið er bæði heit og köld trefja svo það er hægt að klæðast því í heitum og köldum löndum.
Silki þolir ekki:
- Ilmvötn, því þá upplitast það.
- Svita, því þá upplitast það.
- Sterkt sólarljós, því þá brotnar silkið og fær á sig gat.
- Klór, því þá leysist það upp.
- Háan hita.
- Venjulegt þvottaefni.
Silki er flokkað í:
Net silk/ hespusilki: Þráðalengdin er 1000 m úr miðri púpunni. Þetta silki er með mestu gæðin og er því dýrast.
Mikið notað í slæður því það er svo létt og fínt.
Spun Silk/ spunasilki: Þráðalengd þess er 30 sm og er silkið stundum kallað Schappe silk
Noil Silk/ hrásilki: Stuttar trefjar sem eru um 1 sm í lengd. Þær eru grófar, lélegar og ódýrar og unnar eins og ull. Noil-silki er líka stundum stundum kallað Bourette-silki.