Textílefni
Þvottaleiðbeiningar - Hálfgerviefni
Viskós, cupro, acetate, triacetate:
Má þvo á 40 gráðum, en þarf að þvo varlega í vél
Þolir ekki klór
Þolir ekki þurrkara
Strauja á meðalhita
Þolir hreinsun
Modal og Lyocell:
Má þvo á 60 gráðum
Þolir ekki klór
Þolir lágan hita í þurrkara
Strauja á meðalhita
Þolir hreinsun
Hálfgervitrefjar eru öðruvísi en bómull, hör, ull og silki hvað snertir þvottaleiðbeiningar. Undir hálfgervitrefjum eru nokkur efni og þau eru ekki öll þvegin eins. Því þarf að skoða hvert efni fyrir sig.