Textílefni
Eiginleikar - Ull
Mikilvægir eiginleikar ullar eru loftgöt og hreistur. Hún getur haldið 35% af þyngd sinni af vatni án þess að virðast blaut. Helsti kostur ullar er einangrunin sem loftpípurnar gefa.
Ull þæfist af því að hreistrið festist saman.
Til að þæfa þarf hita, raka og núning. Gera þarf ráð fyrir að nota
helmingi umfangsmeiri ull en eftir verður þegar þæfa á hana því
umfangið minnkar þegar ullin er þæfð.
Ull er veikari blaut en þurr en aftur á móti teygist betur á henni þegar
hún er blaut.
Allra fínasta ullin er Merino-ull og er hún aðeins úr þeli. Upprunaland hennar er Spánn.
Íslenska ullin er milligróf með þel og tog. Íslenski fjárstofninn hefur lítið breyst frá landnámi. Fjórir litir eru á kindunum og heita hvítur, hærusvartur, grár og mórauður.