Textílefni
Eiginleikar - Algerviefni
Algervitrefjum er skipt í þrjá flokka:
- Þjappaðar fjölliður: Polymade (nylon) og polyester
- Viðbótar fjölliður: Polyacryl
- Samstæðar fjölliður: Elestane (teygja)
Helstu algervitrefjarnar og eiginleikar þeirra eru:
Polyester:
- Þolir hæsta hitann af algervitrefjunum og er því mest notaður í tvinna.
- Þolir heitari þvott en aðrar algervitrefjar.
- Hægt að meðhöndla þannig að efnið verði eldþolið (gott í barnaföt, hótelsængur, áklæði og gardínur.
Acryl:
- - Notuð sem stutttrefja og er látin líkjast ull.
- Hlý þurr en köld blaut.
- Hljómar eins og kartöflumjöl þegar það er kreist.
Modacryl: Er eldvarin acryltrefja, notuð í hlífðarföt og tjöld.
Polyamide (nylon):
- 80-90% sterkara blautt en þurrt.
- Þolir illa þurran hita.
- Gulnar og brotnar í miklu sólarljósi.
- Erfitt að slíta.
- Sterkast algerviefna.
- Missir styrkleika sinn í sólarljósi.
- Oft meðhöndlað til að draga úr rafmagnsmyndun.
Langtrefju nylon: Í 80% tilfella búið að breyta lögun þráðanna. Notað í sundföt, sportföt, nærföt, sokka, blússur, kjóla, regnföt og fleira.
Stutttrefju nylon: Notað til að blanda með bómull og ull. Notað eitt og sér í flísföt.
Kevlar: Er fimmfalt styrktur nylonþráður. Notaður í skot- og stunguheldan fatnað.
Polyester:
- Mest notaða trefjan og sú fjölhæfasta.
- 60% af framleiddu efni er notað sem stutttrefja til að líkja eftir bómull og ull.
- 40% er notað til að líkja eftir silki.
- Notaður í gæðasaumatvinna.
- Dregur lítinn vökva í sig.
- Jafn sterkur blautur og þurr.
- Krumpast lítið.
- Þolir sólarljós.
- Þolir vel hita.
Langtrefja polyester: Vandaður overlock tvinni. Notaður í blússur, kjóla, hálsbindi, regnföt og fóður.
Stutttrefja polyester: Notaður til að líkja eftir náttúrutrefjum.
Elastane (spandex):
- Teygist 500% lengd sína og sprettur til baka í upprunalega lengd.
- Notað í sokka, sokkabuxur og sundföt.
- Krumpast ekki.
Lurex:
- Ólífræn trefja búin til úr áli.
- Grunnlitur er gylltur og silfraður.
- Ef það á að vera í öðrum lit er það húðað og getur þá húðin brotnað af.
- Notað eða blandað með trefjum til skrauts.