Textílefni
Hálfgerviefni
Sagan: Upp úr 1900 var verið að þróa hálfgervitrefjar en ekki hófst á því skipulögð framleiðsla fyrr en árið 1904. Mikil krafa var um að hafa silki í sokkum og nærfötum og höfðu ekki allir efni á því og var þá notað rayon sem líkist silki. Rayon var kallað silki fátæka mannsins. Á millistríðsárunum var rosalega vinsælt að nota viskós eða rayon.
Hvernig er hálfgerviefni búið til:
1. Hráefninu er breytt í seigfljótandi vökva.
2. Vökvinn er settur í ílát og svo hitaður örlítið. Honum er svo þrýst í gegnum spunavörtu. Stærð og lögun þráðar fer eftir götunum á spunavörtunum.
3. Trefjan fer í storknun þar sem notað er vatn og kalt eða heitt loft.
4. Að lokum er þráðurinn undinn upp á kefli.
Til frekari útskýringar er hér stutt mynd sem sýnir hvernig hálfgerviefni er búið til: