Textílefni
Þvottaleiðbeiningar - Algerviefni
Algervitrefjar er öðruvísi en bómull, hör, ull og silki hvað snertir þvottaleiðbeiningar. Í flokki algervitrefja eru nokkur efni og þau eru ekki öll þvegin eins. Því þarf að skoða hvert efni fyrir sig.
Polyester:
Má þvo á 60 gráðum, en þvo þarf varlega í vél
Þolir ekki klór
Þolir lágan hita í þurrkara
Strauja þarf á meðalhita
Þolir hreinsun
Acryl og polyamide (nylon):
Má þvo á 40 gráðum, en þvo þarf varlega í vél
Þolir ekki klór
Þolir ekki þurrkara
Strauja þarf á lágum hita
Þolir hreinsun