Textílefni
Eiginleikar - Hálfgerviefni
Hálfgervitrefjar skiptast í þrjá yfirflokka:
Sellulósi: Sellulósahálfgervitrefjar eru unnar úr sellulósa sem kemur úr jurtaríkinu. Í hann er aðallega notað kurlað furutré, bambus, kókóstré og eucalyptus.
Efni sem gerð hafa verið úr sellulósa eru:
Viskós: Viskós er kallað bómull norðursins því það er líkt bómullinni í uppbyggingu og áferð nema það er mjög veikt blautt ólíkt bómullinni.
- Viskós hleypur því það dregur vel í sig raka og bólgnar upp.
- Það á ekki að rafmagnast því í því eru náttúrutrefjar í grunninn.
- Langtrefjan er klippt niður til að líkjast bómull eða ull, en er látin halda sér til að líkjast silki.
- Litast vel í björtum litum og heldur því vel.
- Fellur vel, er þungt.
- Krumpast mikið vegna skorts á fjaðurmögnun.
- Mjúkt viðkomu.
- Ódýrt.
Modal: Er alltaf betra í samanburði þegar litið er á galla viskósins og þar af leiðandi dýrari. Oft notað í gerð á undirfatnaði og rúmfata.
Cupro: Dregið hefur úr framleiðslu á þessu efni vegna umhverfisáhrifa.
- Notað í fóður.
- Þarf vatnsbað til að storkna.
- Þarf kopar til að breyta hráefni í fljótandi lausn.
- Mjög líkt viskós og mjúkt viðkomu.
Acetate: Er líkast silki af efnum flokki sellulósahálfgervitrefja.
- Léttast og viðkvæmast af sellulósaefnunum.
- Notað til að fóðra silki.
- Leysist upp ef aseton kemst í það.
- Þolir illa háan hita.
Triacetate:
- Þolir aseton.
- Þolir illa háan hita.
Lyocell: Umhverfisvænast í flokki sellulósahálfgervitrefja.
- Við storknun er notað kalt loft.
- Þolir þurrkara.
- Dregur ekki eins vel í sig raka og viskós.
- Er notað í gallaefni.
Gúmmí: Trefjurnar eru unnar úr vökva gúmmítrésins. Erlend heiti efna sem gerð eru úr gúmmí eru:
Latex: Notað við framleiðslu á fatnaði eins og buxum, samfestingum,kjólum og þar fram eftir götum.
Rubber: Er notað við framleiðsli á kafarabúningum, æfingadýnum, stígvélum, mottum í bíla og þar fram eftir götum.
Alginate: Trefjar unnar úr þara og svo leystar í sundur í sápu.