Textílefni
Eiginleikar - Hör
Hör er mjög rakdrægur. Ef við værum til að mynda með blauta bómull og blautan hör þá væri hörinn sterkari. Hör er fljótur að þorna og köld trefja svo hann er mikið notaður í heitum löndum.
Það er mikið notað af hör í buxur, pils, skyrtur, blússur
jakka og í rauninni hvað sem er fyrir utan sokka og
nærföt, frístundafatnað og sumarfatnað. Ef hör á að
teygjast þarf að sníða á ská.