Textílefni
Silki
Silki er úr náttúrutrefjum eða nánar tiltekið dýratrefjum.
Sagan: Árið 2640 f.Kr. uppgvötar kínverska keisaraynjan,
Si Ling Shi, púpu mórberjafiðrildisins. En það mátti ekki flytja lirfur úr landi
og ef slíkt var gert varðaði það dauðarefsingu. 500 e.Kr. smygla tveir
rómverskir munkar lirfum til Rómarveldis og hefst þá ræktun á silki í
Evrópu, nánar tiltekið á Ítalíu og í Frakklandi.
Plantan: Silki er úr eggjahvítuefni sem nefnist líka prótein eða prótín. Hún er eina náttúrulega langtrefjan. Silkifiðrildið nærist einungis á laufblöðum mórberjarunnans.Til að búa til púpu spýtir lirfan vökva sem nefnist fibrolin út um tvö göt sem kallast spunavörtur. Hún nuddar svo vökvanum á milli afturfótanna með lími. Límið er svo þvegið úr silki mórberjarunnans en ekki úr villisilki.
Framleiðsluferli: Púpur eru lagðar í volgt vatn og hespaðar en
það er þegar þræðirnir eru dregnir úr púpunni og búin til
dokka. Trefjarnar eru þvegnar upp úr mildu sápuvatni til að
losa límið sem kallast sericin. Silkið léttist þá um 25% og er
það svo þyngt aftur með málmsöltum svo það falli vel en það
má ekki þyngja um meira en 25%. Ef það er þyngt um meira
en fjórðung brotnar silkið.
Hér er sýnt hvernig silki er búið til: